20.4.09
16.4.09
Dáið, horfið, harmafregn?
Ég er ekki frá því að þetta blogg sé hálfdautt. Sé andlátsstundin í raun og veru nærri þá var líftíminn heil sjö ár. Kannski rís það upp einhverntíma í maí þegar ég er orðin atvinnulaus - sveimérþá ég bara veit það ekki. En enginn hefur svosem enn kvartað við mig yfir skorti á bloggi, þeir sem nenna að skoða blogg býðst nóg af öðrum síðum. Ég hinsvegar les sífellt færri bloggsíður og vel þær af kostgæfni.
Bókabloggið er hins vegar með talsverðu lífsmarki og ég hef enga trú á öðru en að það muni blómstra í sumar.
4.4.09
31.3.09
Hmmmm?
Það er einhver búinn að búa til nýtt blogg handa mér. Eins og sjá má er ég ekki búin að skrifa neitt á síðuna. Ég þarf aðeins að hugsa þetta betur!
byrjað á brjósti og endað í ræsinu
SÁÁ er komið með einhverskonar bloggsíðu (kannski er þetta ekki nýtt en ég var allavega að sjá þetta fyrst núna). Mér finnst alltaf áhugavert að lesa það sem kemur frá SÁÁ og velta fyrir mér náttsloppaheiminum þarna í Grafarvogi, sem Einar Már Guðmundsson sagði að væri á við heilt háskólanám. Mér dettur samt yfirleitt í hug þegar ég les einhverja statistík um að svo og svo mörg prósent dópista eða fyllibytta hafi byrjað í þessu eða hinu efninu og endað í heróíni eða guð veit hverju með bullandi lifrarbólgu og heilaskemmdir, hvort þetta byrji ekki bara allt með brjóstamjólkinni. Hafa ekki 90% íslenskra fíkla, sem hafa síðan endað útúrskakkir og delerandi í afar slæmum málum eða í gröfinni fyrir aldur fram, hreinlega hafið neysluna á mjólkurdrykkju, gosdrykkjaþambi eða vikulegu blandi í poka? (Nú langar mig skyndilega að skrifa meira af ósmekklegu gríni en þori því bara ekki!)
Nú í hádegispásunni í stofusófanum hef ég verið að velta fyrir mér heilsuræktarátaki og rakst á gamla auglýsingu. Fimm mínútur á dag hljómar ekki svo illa. Ég fletti upp í gegni og bæklingurinn er til á nokkrum bókasöfnum.
30.3.09
Íslendingar og útlendingar
Grein í dagblaðinu Nei um uppruna Útlendingastofnunar minnti mig á greinina hér fyrir ofan sem ég las nýlega. Hún er frá 1999, eftir Pétur Pétursson þul, og í henni er birt skeyti þar sem sagt er að gyðingahjónum sé neitað um landvistarleyfi þar sem ríkisstjórnin sé principielt mótfallin því að veita gyðingum dvalarleyfi á Íslandi. Aftast í þessari grein er minnst á Norðmanninn Egil Holmboe sem var nasisti og túlkaði m.a. samtal Knuts Hamsuns og Hitlers. Holmboe þennan grunaði Leifur Muller um að hafa framselt sig til nasista. Egil Holmboe flutti einhverntíma eftir stríð til Íslands (þá hafði hann setið í fangelsi í Noregi fyrir stríðsglæpi) og giftist konu sem hét Sigríður Matthíasdóttir. Hér tók hann upp nafnið Egill Fálkason og bjó síðast á Háteigsveginum og dó eldgamall á níunda áratugnum.
28.3.09
Ástir og mannlíf, kommúnismi, vísnagátur eða þjóðsögur Jóns Múla?
Í kvöld er mér bjóðið í matarbjóð hjá vinum mínum. Góðu fólki gef ég oft bækur sem mér finnst sniðugar. Í gær skrapp ég í Góða hirðinn og fann þessar fjórar, nú er bara spurning hvaða bók ég vel handa gestgjöfunum. Þessi með myndinni af angurværa parinu á samkvæmt því sem stendur á kápunni að vera ráðgefandi í öllum vanda um barnauppeldi, ástalíf, einlífi og elli og ekki er það lítilvægt. Bókin um hvernig menn verða góðir kommúnistar er vissulega áhugaverð en frekar leiðinleg heyrist mér (það var verið að lesa upphátt fyrir mig úr henni). En kápan á henni finnst mér ansi stílhrein og falleg. Vísnagátur fyrir fullorðna er ég snjallari að ráða en ég bjóst við, hins vegar vantar svör við nokkrum af gátunum og í boði eru bókaverðlaun sendi maður Erni og Örlygi rétt svör við þeim. Hvar ætli þeir félagar Örn og Örlygur haldi sig tuttugu og fimm árum eftir útgáfuna? Jón Múla hef ég ekkert kíkt á ennþá enda má ég ekki vera að því, ég þarf að fara að viða að mér efni í næsta útvarpsþátt þar sem fjallað verður um Íslendinga í fangabúðum nazista. Já, við erum semsagt að tala um laugardagssíðdegi á tímakaupi lausráðinna dagskrárgerðarmanna hjá RÚV. Skál fyrir því! Er til launasjóður útvarpsþáttagerðarmanna (svona eins og launasjóður rithöfunda)? Hann ætti að minnsta kosti að vera til, allt annað væri ósanngjarnt.Hafi heimsendir ekki brostið á í fyrramálið má kveikja á útvarpinu og stilla á Rás 1 þar sem heyrast mun í mér, Þorgerði og Ingólfi (til að fyrirbyggja misskilning þá er ekki um að ræða fagurkerann Ingólf Guðbrandsson og kórstjórann dóttur hans, sem alltaf er svo prúð og frjálsleg í fasi, heldur allt annað fólk en fjarskalega músíkalskt þó).
27.3.09
hugarburður og barneignaverðlaun
Hinir og þessir biðjast þessa dagana afsökunar á ýmsu. Ég hef dálítið verið að velta fyrir mér að biðjast afsökunar á einhverju, svona til að vera með, en finn ekki alveg flötinn á því. Man heldur ekki eftir neinu sem ég þyrfti að biðja almenning afsökunar á - mínir örskandalar eru ekki beinlínis á þjóðarlevel. Í gamla daga baðst fólk afsökunar á hinu og þessu í dagblöðunum, afturkallaði orð sín og kom með yfirlýsingar um ýmsa hegðun sem það ætlaði að tileinka sér í framtíðinni. Já og svo var það Ísfirðingurinn sem sótti um verðlaun til Alþingis vegna barneigna!





