Sól í Norðurmýri

„Hér býr millistéttarfólk og allt upp í svolítið fínt fólk, því þetta er svo gott hverfi.“

19.5.08

"helst mentuð, með veikan fjárhag"

Það er hægt að finna óendanlega mikið af forvitnilegum auglýsingum í gömlum Morgunblöðum. Þessi hérna, frá 1942, finnst mér verulega dularfull og afar undarlega orðuð. Hvernig maður ætli hafi staðið á bakvið hana?