Sól í Norðurmýri

„Hér býr millistéttarfólk og allt upp í svolítið fínt fólk, því þetta er svo gott hverfi.“

15.8.08

ritdeilukona með teflonhúð

Æ,æ, mér sýnist ég óvart vera komin í kommentaritdeilu við mann sem ég þekki ekki og hef sjaldan lesið. Honum finnst ég hafa sérkennilega skoðun, sjálfsagt er hann ekki einn um það. Bindið samt ekki of miklar vonir við þessa ritdeilu, ég efast um að ég eigi eftir að tjá mig meira þar. Ég hef of mikið að gera þessa stundina og svo hefur mér vaxið teflonhúð þannig að allur mögulegur æsingur hripar af mér jafnóðum. Ég nenni lítið að þvarga yfirleitt, get hreinlega varla haft skoðun, hvað þá æst mig yfir nokkrum hlut. Ekki orka ég til dæmis að fylgjast með borgarmálaskrípóinu, tel mér trú um að það sé einfaldlega of mikið af rugli í borgarpólitíkinni til að ég leggi það á mig að reyna að átta mig á hver er að ljúga hvenær, eða hvort einhver sé yfirleitt ekki að ljúga. Ef þið sjáið heimskulega pollrólega eldri konu með sólskinsbros og geislabaug af hamingju þá er það sennilega ég.

Á þessari stundu rignir á þvottinn sem var í gær orðinn skraufþurr úti á snúru.

Ég held nú áfram að prófarkalesa en ef þið hafið áhuga og langar að rífast smá líka þá er ritdeilan hér!